Archive for the ‘Gettu betur’ Category

Sagnfræði, jól og gettu betur

Thursday, January 10th, 2008

Titillin lýsir ágætlega því sem hefur á daga mína drifið undanfarið misseri en þó mætti bæta við Nýju Jórvíkur-ferðinni sem heppnaðist mjög vel. Við urðum a.m.k. ekki viðfangsefni C.S.I. eða 24. Verst að eina fræga fólkið sem við sáum voru Chris Tucker og gaurinn úr “King of Queens” (í Queens á hafnarboltaleik).

Einkunnirnar úr sagnfræðinni streyma inn og meðaleinkunnin er komin upp í 8,25. Vonandi hækkar heimssagan hana meira. Framhaldsskólataktíkin dugir hinsvegar ekki mjög vel í háskólanámi. Svo verður spennandi að mæta í tíma hjá Vali Ingimundarsyni og Þór Whitehead.

Gettu betur lið MH stóð sig vel og er komið í aðra umferð keppninnar og auðvitað fer það eitthvað lengra í framhaldinu. Fyrsta umferðin hefur þó verið frekar skringileg. Spurningarnar misþungar og frekar einhæfar (þó ég hefði ekkert á móti þeim væri ég í liðinu). Greinilegt er þó að MR og MK eru sterkustu andstæðingarnir og MA og Verzló koma líka sterkir inn þó það komi svo sem ekkert á óvart. Verst að MH mun ekki bæta kynjahlutfallið í keppninni að þessu sinni. Á næsta ári verður greinilega að taka upp Stalínískar aðferðir við val á keppendum til að finna alla mögulega keppendur af öllum mögulegum kynjum. Allir verða neyddir í próf og þeir efstu þvingaðir í stranga þjálfun í Sovéskum samyrkjubúum.

Hið dularfulla hvarf Albert Schweitzers og Hárlausu söngkonunnar

Saturday, March 24th, 2007

Þá er beinni Gettu betur þátttöku minni víst lokið. Það er vissulega sárt að tapa svona naumt og augljóst að þegar liðin eru svona jöfn getur ein spurning til eða frá skipt öllu máli. Hinsvegar hjálpar ekkert að velta sér upp úr þessu og nú vona ég bara að MK takist að sigra MR liðið, en þar er við ramman reip að draga.

Eftir á að hyggja sé ég engar veilur á herkænsku okkar en spurningarnar áttu ekki alveg nógu vel við okkur. Þó að Davíð Þór sé með skemmtilegri dómurum í þessari keppni þá er kynslóðabilið kannski svolítið greinilegt. Margar vísbendingaspurningarnar voru full léttar þannig að mjög oft var barátta um bjölluna í fyrstu vísbendingu á meðan aðrar komu aldrei. Albert Scweitzer og leikritið Hárlausa Söngkonan eru atriði sem hver einasta manneskja yfir fertugu virðist vita á meðan við unglingarnir stöndum á gati. Þetta er reyndar mjög athyglisvert fyrirbæri þar sem Albert Schweitzer var eftir frekari rannsóknir mínar (byggðar á munnlegum heimildum) nefndur við svipuð tilefni og Móðir Theresa og Dalai Lama og í alla staði mjög athyglisverður. Þessi vitneskja virðist þó af einhverjum ástæðum ekki hafa borist áfram til yngri kynslóða. Nú vona ég bara að skrif mín séu ekki mörkuð of miklum biturleika því að við þessar aðstæður skiptir mestu að geta tapað með reisn. Ég vil þakka öllum vinum aðstandendum og skólafélögum stuðninginn og þá sérstaklega þeim dygga hópi sem hefur komið á næstum hverja keppni (þið vitið hver þið eruð).
Á hversdagslegri nótum þá er fyrstu nánu kynnum mínum af áfengi lokið og þar með tel ég mig hafa uppfyllt loforð mitt til Hildar og Snorra.

Tónlist: Radiohead- Amnesiac. Frábær plata en ég mæli ekki með henni fyrir andlega óstöðuga.

Stórviðburðir

Wednesday, March 7th, 2007

Verzlingar stóðu sig vel síðasta föstudag. Það er hinsvegar leiðinlegt að hitt liðið skipað stelpum hafi dottið út, en það stóð sig einnig mjög vel miðað við að það er bara skipað nýliðum. Spurningarnar hans Davíð eru líka skemmtilegar (óskaplega er þessi færsla að verða pirrandi jákvæð) og þessi keppni var næstum því eins og sniðin fyrir okkur, án þess að ég gefi meira upp. Hinsvegar er greinilegt að við þurfum að passa okkur því sumar spurninganna eru augljósari en maður þyrði að halda á meðan aðrar eru langsóttari og því væri auðvelt að brenna sig á bjöllunni. Annað áhyggjuefni tengt þessu eru skemmtiatriðin. Ég hef ekkert heyrt frá Sjónvarpinu um tilhögun þeirra en samt eru stjórnin og liðið farið að velta þessu fyrir sér. Ætli það væri ekki MH-legast að senda einhverja hljómsveit en það gæti orðið erfitt að velja úr flórunni. Svo er náttúrulega viðbúið að flestir MH-ingar verði á Morfís. Ef allt bregst sendum við bara trúbadorinn Snorra Snobb (núna vantar bara viðurnefni fyrir Hildi) upp á svið.

19 ára afmælið er um helgina en ólíkt síðustu þremur (jafnvel fleirum ef maður telur með sakhæfi) afmælum er ekkert merkilegt við þau tímamót frá lagalegu sjónarmiði, ég skora á ykkur að finna eitthvað. Það þýðir ekki að afmælið verði leiðinlegt. Þóra systir er búin að bjóða mér á Leg á föstudaginn og svo verður eitthvað boð á laugardaginn. Miðað við tímamótin framundan er líka best að halda þessu í smærri kantinum. Steinar fermist 1. apríl og fékk kjólföt í tilefni þess. Það er greinilegt að fatasmekkurinn þroskast við þessi tímamót. Í maí verður svo hið stórskemmtilega tvöfalda fimmtugsafmæli/útskrift sem allir bíða spenntir eftir.

München, Gettu betur og Björn Bjarnason

Tuesday, February 27th, 2007

Aðalverkefni söguáfangans sem ég er í er ritgerð sem á að styðjast við samtímaheimildir. Þema áfangans er millistríðsárin og efnið mitt er München sáttmálinn alræmdi þar sem Bretar og Frakkar gáfu Þjóðverjum leyfi til þess að hirða megnið af Tékkóslóvakíu. Þessu tókst mér að tvinna saman við annað helsta áhugaefni mitt, pólitík. Ég ætla að skoða umfjöllun um þennan sáttmála í nútímanum í samabandi við stríðsrekstur Bandaríkjanna undanfarið. Það hefur nefnilega verið vitnað í friðkaupsstefnu bandamanna ótal sinnum í tenglsum við friðarhreyfinguna og stríðið í Írak og nú síðast aðgerðir gegn Íran. Auðvitað skiptir engu máli að Þýskalandi hafði stærsta flugher og best þjálfaða her í heimi og var stjórnað af Hitler á meðan Írak og Íran eru þriðjaheimslönd og að Bandaríkin eru árásaraðillinn. Vissulega væri það slæmt ef að vitleysingjarnir í Íran eignuðust kjarnorkusprengju en á móti kemur að þeir hafa lýst því yfir að það sé ekki markmið þeirra (kannski þeir séu að ljúga en til þess eru eftilitsmenn) á meðan Bandaríkin eiga þúsundir kjarnorkusprengja, eru eina landið sem hefur notað þær og hyggst janfvel nota þær til þess að koma í veg fyrir að Íranar geti hugsanlega fengið sér eina. Hvort landið er meiri ógn við heimsfriðinn?

Nú er orðið skuggalega stutt í Gettu betur og fyrsta keppnin búin í sjónvarpinu. MK komu mér á óvart og eiga það greinilega skilið að komast í undanúrslit. Nú er bara að vona að við fylgjum fordæmi þeirra. Af ofsóknaræðislegum örryggisástæðum opinbera ég ekki leslista minn en nú þarf að gefa í ef ég ætla að klára hann.
Björn Bjarnason kom umhverfisstefnu sjálfstæðisflokksins til varnar í grein í Mogganum í dag. Það er kannski til vitnis um hugsunarhátt hans að hann eyddi u.þ.b. setningu í það að telja upp það góða sem sjálfstæðisflokkurinn hefur gert í þágu umhverfisverndar en helmingi greinarinnar í að skamma Sovétríkin fyrir vonda umgengni um náttúruna. Persónulega á ég erfitt með að sjá hvað umhverfis- og iðnaðarstefna ríkis sem hefur ekki verið til í tvo áratugi hefur að gera með núverandi stefnu hægrisinnaðs stjórnmálaflokks á Íslandi. Björn vill meina að Vinstri-grænir séu tengingin en það á ég erfitt með að skilja. Líklegra finnst mér að háttvirtur dóms- og kirkjumálaráðherra sé svo fastur í kalda stríðs-hugsunarhætti að hann geti ekki rætt umhverfismál málefnalega. Það er ákveðin kaldhæðni fólgin í því enda hefur hann verið manna uppteknastur við að saka vinstri menn um að vera fasta í fortíðinni.

Gettu betur II

Thursday, January 18th, 2007

Síðan síðast höfum við unnið báða mótherjana í útvarpinu og eru því komin aftur í sjónvarpið. Það er gott fyrir athyglissjúka MH-inga eins og okkur og við getum lofað skemmtilegum búningum. Þrátt fyrir hættuna á því að hljóma hrokafullur þá er ég nokkuð sáttur með dráttinn í sjónvarpið. MK vinnur líklega FG (sem var nú reyndar drauma andstæðingur Garðbæingsins í liðinu) og MR sömuleiðis MS. MA-Verzló verður því líklega mest spennandi keppnin en þó að Verzló hafi ekki staðið sig neitt sérstaklega vel þá eru þeir frekar mistækir og ég býst við góðum árangri í sjónvarpinu. Frá feminísku sjónarmiði væri þó best að MA kæmist sem lengst (eða við).

Annars hef ég haft það nokkuð gott síðan við unnum þrátt fyrir kvefpestina sem ég hef verið að jafna mig á. Máni er kominn til landsins að nýju sem er gott því að ég hafði ekkert tækifæri til þess að hitta hann fyrir jól. Næsti mánuður verður svo helgaður glósum.

Gettu Betur

Thursday, January 11th, 2007

Ætli maður reyni ekki að viðhalda þessari síðu eitthvað betur en bloggernum úr því að þetta er nú einu sinni gjöf.

Enn og aftur er komið að Gettu betur og fyrsta viðureignin er við Hvanneyri núna á morgun. Núna ætla ég mér ekki að verða virtur Gettu betur bloggari eins og Snorri félagi minn en ætli ég leyfi mér ekki að spá aðeins í þetta.

Það borgar sig aldrei að vanmeta andstæðinginn og miðað við stærð hefur Hvanneyri bara staðið sig nokkuð vel, allavega betur en Iðnskólinn í Hafnarfirði. Hinsvegar erum við með gott lið og við höfum öll reynslu af fyrri keppnum svo að ég býst við því að við komumst í aðra umferð. Hún veldur mér hinsvegar nokkrum áhyggjum (ef að við leyfum okkur að hugsa sem svo að við komumst áfram) þar sem að ekkert stendur í vegi fyrir því að við lendum á mótu MR og Versló, liðum sem ég er ekki viss um að við gætum sigrað með svo stuttum fyrirvara. Ef ég tek mér það bessaleyfi að hugsa enn lengra fram í tíman þá er sjónvarpið náttúrulega alltaf markmið fyrir athyglissjúk Gettu betur lið eins og okkur. Sigurinn er svo náttúrulega lokatakmarkið enda ekki seinna vænna að virðuleg menntastofnun eins og MH hampi hljóðnemanum.