Archive for the ‘Daglegt líf’ Category

Róttækir vörubílstjórar

Tuesday, April 8th, 2008

Ég fór í fýluferð niður í Grófarhús til þess að taka árbók Reykjavíkur fyrir ritgerðina mína. Mig vantaði tölfræði til þess að styðja kenningu mína um að skipulagsmál í Reykjavík eftir seinni heimsstyrjöld væru klúður. Ég gekk fram á vörubílstjóra sem voru önnum kafnir við að drekka kaffi, spjalla við lögguna og innikróa nokkra ráðherra í Hafnarhúsinu hliðina á bókasafninu. Mótmæli þeirra hafa ekki snert mig mikið en þeim tókst þó að halda fyrir mér vöku með flauti sínu þegar ég ætlaði að leggja mig á föstudaginn fyrir einni og hálfri viku.

Fólk kvartaði mikið yfir óskammfeilninni í lötu útlendingunum og föðurlandssvikurunum sem hlekkjuðu sig við allt lauslegt og lokuðu Snorrabrautinni síðasta sumar í nafni náttúruverndar. það var allt of langt gengið. Nú þegar vörubílstjórar loka heilu hverfunum, tefja sjúkraflutninga og halda vöku fyrir landsmönnum marga daga í senn er hinsvegar allt í lagi. Fólk styður þá heilshugar þó það komist ekki til útlanda eða í vinnuna fyrir þeim. Kannski vegna þess að bílafólkið sem verst verður úti hefur svo mikla samúð með kröfum þeirra um lægra bensínverð. Sjálfur hef ég meiri samúð með hvíldarplanaleysi þeirra og þessu “catch 22″ samspili íslenskra vegalengda og Evrópusambandsreglna. Þeim gengi kannski betur ef þeir parkeruðu trukkunum sínum í Brussel og fyrir framan bensínstöðvar. Ég vona að minnsta kosti að ríkisstjórnin láti ekki undan og lækki álögur á bensín.

Það virðist þó engin hætta á því. Geir varð svo reiður yfir því að þurfa að labba frá Hafnarhúsinu og upp í stjórnarráð (strætóinn sem ég tók stoppar þar líka en við vorum samt ekki samferða) að hann ætlar ekki að semja. Athyglisvert að þetta er það fyrsta sem ég heyri í ríkisstjórninni um þetta mál. Loksins þegar vörubílstjórar taka upp hnitmiðaðar aðgerðir gegn ríkisstjórninni í stað þess að tefja lækna og Grafarvogsbúa þá fyrst er þetta orðið ólíðandi dónaskapur. Svona eru viðhorf Íslendinga til mótmæla þversagnarkennd.

Sagnfræði, jól og gettu betur

Thursday, January 10th, 2008

Titillin lýsir ágætlega því sem hefur á daga mína drifið undanfarið misseri en þó mætti bæta við Nýju Jórvíkur-ferðinni sem heppnaðist mjög vel. Við urðum a.m.k. ekki viðfangsefni C.S.I. eða 24. Verst að eina fræga fólkið sem við sáum voru Chris Tucker og gaurinn úr “King of Queens” (í Queens á hafnarboltaleik).

Einkunnirnar úr sagnfræðinni streyma inn og meðaleinkunnin er komin upp í 8,25. Vonandi hækkar heimssagan hana meira. Framhaldsskólataktíkin dugir hinsvegar ekki mjög vel í háskólanámi. Svo verður spennandi að mæta í tíma hjá Vali Ingimundarsyni og Þór Whitehead.

Gettu betur lið MH stóð sig vel og er komið í aðra umferð keppninnar og auðvitað fer það eitthvað lengra í framhaldinu. Fyrsta umferðin hefur þó verið frekar skringileg. Spurningarnar misþungar og frekar einhæfar (þó ég hefði ekkert á móti þeim væri ég í liðinu). Greinilegt er þó að MR og MK eru sterkustu andstæðingarnir og MA og Verzló koma líka sterkir inn þó það komi svo sem ekkert á óvart. Verst að MH mun ekki bæta kynjahlutfallið í keppninni að þessu sinni. Á næsta ári verður greinilega að taka upp Stalínískar aðferðir við val á keppendum til að finna alla mögulega keppendur af öllum mögulegum kynjum. Allir verða neyddir í próf og þeir efstu þvingaðir í stranga þjálfun í Sovéskum samyrkjubúum.

Jólin eru komin í Hólavallagarði

Thursday, August 2nd, 2007

Nú þegar hysterían um lifandi hundinn Lúkas er búinn er loksins óhætt að blogga þó að ég sé líklega nú þegar búinn að stimpla mig sem plebba bara með því að minnast á hann.

Annars er svosem ekki mikið til að blogga um svona á sumrin svo ég þarf varla að afsaka mig. Helst í fréttum er Nýju Jórvíkur-ferðin sem lagt verður upp í eftir tvær vikur. Þökk sé töfrum google þá er hægt að skipuleggja ferðina niður smæstu smáatriði. Hérna er tildæmis farfuglaheimilið sem ég mun gista á.

Skuggalegra er hinsvegar það að fyrsta morðið í tvö ár á landinu, og það fyrsta skipulagða sem ég man eftir, hafi verið framið hérna í næsta nágrenni. Skrítið að hverfissundlaugin og gatnamótin sem ég hjóla framhjá annan hvern dag séu vettvangur morðs af yfirlögðu ráði. Það er svo sem ekki mikið um það að segja nema hve mikill harmleikur það hlýtur að vera fyrir alla hlutaðeigandi.

Nálægðin við dauðan í mínu daglega umhverfi varð líka áþreifanlegri þegar við fundum bein við stígagerð í kirkjugarðinum. Þrátt fyrir það að ég vinni í kirkjugarði hafði ég aldrei sé látna persónu áður. Eitthvað þótti mér það þó grunsamlegt hve smágerð beinin voru og hve grunnt þau voru grafin. Þegar við fundum svo beittar tennur í kjálkabeininu og leifar af ól þá sannfærðist ég um að þarna lægi köttur en ekki barn. Núna liggur hann í vígðri jörð undir stíg í svæði X.

Við stígagerðina fékk ég svo Jólalag á heilann. Lagið var sem betur fer hið fallega “Það á að gefa börnum brauð”. Hinsvegar reyndist mér það um megn að raula það því að ég var svo óheppinn að fá það á heilann raddað og í keðjusöng.

Stórviðburðir

Wednesday, March 7th, 2007

Verzlingar stóðu sig vel síðasta föstudag. Það er hinsvegar leiðinlegt að hitt liðið skipað stelpum hafi dottið út, en það stóð sig einnig mjög vel miðað við að það er bara skipað nýliðum. Spurningarnar hans Davíð eru líka skemmtilegar (óskaplega er þessi færsla að verða pirrandi jákvæð) og þessi keppni var næstum því eins og sniðin fyrir okkur, án þess að ég gefi meira upp. Hinsvegar er greinilegt að við þurfum að passa okkur því sumar spurninganna eru augljósari en maður þyrði að halda á meðan aðrar eru langsóttari og því væri auðvelt að brenna sig á bjöllunni. Annað áhyggjuefni tengt þessu eru skemmtiatriðin. Ég hef ekkert heyrt frá Sjónvarpinu um tilhögun þeirra en samt eru stjórnin og liðið farið að velta þessu fyrir sér. Ætli það væri ekki MH-legast að senda einhverja hljómsveit en það gæti orðið erfitt að velja úr flórunni. Svo er náttúrulega viðbúið að flestir MH-ingar verði á Morfís. Ef allt bregst sendum við bara trúbadorinn Snorra Snobb (núna vantar bara viðurnefni fyrir Hildi) upp á svið.

19 ára afmælið er um helgina en ólíkt síðustu þremur (jafnvel fleirum ef maður telur með sakhæfi) afmælum er ekkert merkilegt við þau tímamót frá lagalegu sjónarmiði, ég skora á ykkur að finna eitthvað. Það þýðir ekki að afmælið verði leiðinlegt. Þóra systir er búin að bjóða mér á Leg á föstudaginn og svo verður eitthvað boð á laugardaginn. Miðað við tímamótin framundan er líka best að halda þessu í smærri kantinum. Steinar fermist 1. apríl og fékk kjólföt í tilefni þess. Það er greinilegt að fatasmekkurinn þroskast við þessi tímamót. Í maí verður svo hið stórskemmtilega tvöfalda fimmtugsafmæli/útskrift sem allir bíða spenntir eftir.