Hið dularfulla hvarf Albert Schweitzers og Hárlausu söngkonunnar
Saturday, March 24th, 2007Þá er beinni Gettu betur þátttöku minni víst lokið. Það er vissulega sárt að tapa svona naumt og augljóst að þegar liðin eru svona jöfn getur ein spurning til eða frá skipt öllu máli. Hinsvegar hjálpar ekkert að velta sér upp úr þessu og nú vona ég bara að MK takist að sigra MR liðið, en þar er við ramman reip að draga.
Eftir á að hyggja sé ég engar veilur á herkænsku okkar en spurningarnar áttu ekki alveg nógu vel við okkur. Þó að Davíð Þór sé með skemmtilegri dómurum í þessari keppni þá er kynslóðabilið kannski svolítið greinilegt. Margar vísbendingaspurningarnar voru full léttar þannig að mjög oft var barátta um bjölluna í fyrstu vísbendingu á meðan aðrar komu aldrei. Albert Scweitzer og leikritið Hárlausa Söngkonan eru atriði sem hver einasta manneskja yfir fertugu virðist vita á meðan við unglingarnir stöndum á gati. Þetta er reyndar mjög athyglisvert fyrirbæri þar sem Albert Schweitzer var eftir frekari rannsóknir mínar (byggðar á munnlegum heimildum) nefndur við svipuð tilefni og Móðir Theresa og Dalai Lama og í alla staði mjög athyglisverður. Þessi vitneskja virðist þó af einhverjum ástæðum ekki hafa borist áfram til yngri kynslóða. Nú vona ég bara að skrif mín séu ekki mörkuð of miklum biturleika því að við þessar aðstæður skiptir mestu að geta tapað með reisn. Ég vil þakka öllum vinum aðstandendum og skólafélögum stuðninginn og þá sérstaklega þeim dygga hópi sem hefur komið á næstum hverja keppni (þið vitið hver þið eruð).
Á hversdagslegri nótum þá er fyrstu nánu kynnum mínum af áfengi lokið og þar með tel ég mig hafa uppfyllt loforð mitt til Hildar og Snorra.
Tónlist: Radiohead- Amnesiac. Frábær plata en ég mæli ekki með henni fyrir andlega óstöðuga.