Archive for January, 2008

Fyrirsjáanlega pólitíska færslan

Sunday, January 27th, 2008

Nú er gaman hjá þeim sem skiluðu auðu í síðustu borgarstjórnarkosningum og gáfu þar með skít í kerfið enda er það búið að gefa skít í okkur.

Þeir sem helst má benda á sem tækifærissinnaða valdasjúklinga hafa fundið sér aðra til að benda á, dónalega andlýðræðissinna á pöllum Ráðhússins. Margt sem þeir sögðu var óviðeigandi og kannski var þeim smalað þangað úr menntastofnunum höfuðborgarinnar en næstum allt væri betra en ef enginn mótmælti þessu rugli. Kaldhænislegt að fólk sem er að mynda meirihluta sem nýtur 25% fylgis með einum borgarfulltrúa sem hefur hvorki bakland né flokk kalli það andlýðræðislegt þegar örfáir íslendingar vakna loks af doða sínum og reyna að hafa einhver áhrif. Virk þátttaka í lýðræðislegu samfélagi er nefnilega ekki bara það að kjósa einu sinni á fjögurra ára fresti fólk sem má svo bara gera hvað sem er með því að vísa í lýðræðislegt umboð sitt.

Sjálfstæðisflokkurinn túlkar ekki einungis þátttöku borgarana í lýðræðislegu ákvarðannaferli svona þröngt heldur líka lögin sem eiga að vernda þetta kerfi. Ef eitthvað er löglegt samkvæmt bókstaflegum lestri á lögunum, eins og að skipa lítt hæfan dómara sem hefur reynst flokknum vel, má gera það. Skítt með tilgang lagana og óðháð dómsvald.

Á yfirborðinu virðist það þó betra að láta spilltann lýðræðislega kjörinn ráðherra sem má losa sig við en einhverja nefnd sjá um þetta. Eina vandamálið er að það er ekki hægt að losa sig við hann. Prófkjör og yfirstrikanir ná í mesta lagi að færa hann niður í næsta örugga þingsæti fyrir neðan ef einhver man eftir þessu árið 2009 og ekki ráða kjósendur hver þingmanna verður ráðherra.

Sagnfræði, jól og gettu betur

Thursday, January 10th, 2008

Titillin lýsir ágætlega því sem hefur á daga mína drifið undanfarið misseri en þó mætti bæta við Nýju Jórvíkur-ferðinni sem heppnaðist mjög vel. Við urðum a.m.k. ekki viðfangsefni C.S.I. eða 24. Verst að eina fræga fólkið sem við sáum voru Chris Tucker og gaurinn úr “King of Queens” (í Queens á hafnarboltaleik).

Einkunnirnar úr sagnfræðinni streyma inn og meðaleinkunnin er komin upp í 8,25. Vonandi hækkar heimssagan hana meira. Framhaldsskólataktíkin dugir hinsvegar ekki mjög vel í háskólanámi. Svo verður spennandi að mæta í tíma hjá Vali Ingimundarsyni og Þór Whitehead.

Gettu betur lið MH stóð sig vel og er komið í aðra umferð keppninnar og auðvitað fer það eitthvað lengra í framhaldinu. Fyrsta umferðin hefur þó verið frekar skringileg. Spurningarnar misþungar og frekar einhæfar (þó ég hefði ekkert á móti þeim væri ég í liðinu). Greinilegt er þó að MR og MK eru sterkustu andstæðingarnir og MA og Verzló koma líka sterkir inn þó það komi svo sem ekkert á óvart. Verst að MH mun ekki bæta kynjahlutfallið í keppninni að þessu sinni. Á næsta ári verður greinilega að taka upp Stalínískar aðferðir við val á keppendum til að finna alla mögulega keppendur af öllum mögulegum kynjum. Allir verða neyddir í próf og þeir efstu þvingaðir í stranga þjálfun í Sovéskum samyrkjubúum.