*Ritskoðað*
Wednesday, February 27th, 2008Vegna ummæla á bloggsíðu sinni hefur einhver óheppinn bloggari nú tapað 0,8 milljónum vegna meiðyrðamáls sem var höfðað gegn honum eins og lesa má um hér. Þetta er nokkuð athyglisverð niðurstaða en það á nú eftir að sjá hvort henni verður áfrýjað. Bloggarar þurfa greinilega að vara sig. Annars er staða þessa miðils nokkuð óljós, er þetta fjölmiðill eða einhverskonar opinber dagbók? Ég er ekki viss um að bloggarar líti almennt á bloggið sitt sem fjölmiðil sem allir geti lesið eða geri sér grein fyrir því að hægt sé að kæra þá fyrir óábyrg ummæli sem birtast þar. Hvað með athugasemdir á vefsíðum, ritskoðun og eyddar bloggfærslur, hvaða lög gilda um þær?
Svo er líka spurning hver sé yfirleitt tilgangur meiðyrðalöggjafar? Að hve miklu leyti má hún takmarka tjáningarfrelsi, eitthvað sem hefur átt nokkuð undir högg að sækja undanfarið. Ættum við að geta treyst því að skynsamt fólk bendi á og andmæli þeim ummælum sem eru meiðandi, röng eða jafnvel hættuleg. Tjáningarfrelsi þýðir ekki endilega að fólk ætti að segja hvað sem er þó það megi það.
Í þessu máli var sakborningurinn dæmdur fyrir að segja sína skoðun á ákveðnum manni, hvað svo sem manni finnst um hana. Er hægt að dæma fólk fyrir að opinbera þá skoðun sína að einhver sé rasisti, fífl eða spilltur? Allt byggir þetta á huglægu mati á því hvað rasismi, fíflaskapur eða spilling eru. Það er kannski annað ef að dagblað segir einhvern vera kynferðsafbrotamann án nokkura sannana, eða hvað?