Archive for December, 2008

Hreinsanir

Friday, December 12th, 2008

Núna eru margir bloggarar og mótmælendur reiðir yfir samfélagsástandinu. Efnahagskreppan hefur afhjúpaði ýmislegt rotið í samfélagi okkar og fólk kallar á breytingar. Ef tuga prósenta kaupmáttarskerðing og hlutfallslega dýrasta bankakreppa sem vitað er um hefðu ekki kallað á einhver viðbrögð væri líka eitthvað mikið að. Það er reyndar eitthvað mikið að. Íslenska bóluhagkerfið er að mestu leiti á ábyrgð um það bil 30 auðmanna sem áttu í gegnum flókið net eignartengsla flest fyrirtæki í landinu. Þetta 0,01% þjóðarinnar fékk að stunda í hæsta máta grunsamleg viðskipti í skjóli vinveittra eða fávísra pólitíkusa og ófullnægjandi eftirlitskerfis. Það á eftir að rannsaka þetta frekar og ég fullyrði að ef ekkert ólöglegt kemur upp úr krafsinu, annaðhvort vegna þess að sönnunargögn fast ekki eða af því að athæfi þeirra reynist ekki vera refsivert, þá sé kerfið gjörsamlega ófullnægjandi. Við getum ekki tekið áhættuna á því að svona lagað gerist aftur. Reyndar er sömu söguna að segja í mörgum öðrum löndum en kerfið virðist hafa verið sérstaklega gallað hér á landi.

Nú er eitthvað ferli í gangi sem miðar að því að leysa úr málunum og á meðan ekki fæst upplýst hvað verður gert þá er mikil hætta á því að allt færist aftur í sama horf. Gömlu eigendurnir komi annaðhvort aftur og kaupi upp þrotabúið eða að nýjum flokksgæðingum verði afhennt allt draslið á silfurfati, aftur. Tortryggnin í samfélaginu er skiljanleg því hin óformlega og siðlausa spilling sem kom okkur út í þetta til að byrja með verður enn við lýði meðan sama fólk er við völdin. Við stöndum í svipuðum sporum og Þjóðverjar eftir seinni heimsstyrjöld og austantjaldslöndin eftir fall Berlínarmúrsins, það þarf að hreinsa til í stjórnkerfinu og viðskiptalífinu. Krafan um kosningar er því ekki skrítin enda eru þær eina lýðræðislega (og ofbeldislausa) leiðin til þess að hreinsa til í samfélagi þar sem tíðkast ekki að fólk viðurkenni ábyrgð á gjörðum sínum (eða skorti á þeim). Það má vel vera að það sé óráðlegt að kjósa núna en það þarf að gerast áður en það verður orðið of seint að breyta til, eignirnar seldar og verndaðar af hinum heilaga eignarétt.

Þegar við kjósum loksins verðum við að passa að hleypa ekki aftur þeim sem rifu niður samfélagið í sömu stöður. Stjórnmálamenn sem vanræktu skyldur sínar eða hafa óeðlileg tengsl inn í viðskiptalífið, sérstaklega gömlu bankana, þarf að strika út. Það skiptir ekki höfuðmáli í hvaða flokki þeir eru en flesta má líklega finna í Sjálfstæðisflokknum. Þessvegna hvet ég fólk til þess að rannsaka gaumgæfiega þá sem það kýs. Ég hvet fólk einnig til þess að kjósa í öllum opnum prófkjörum sem flokkarnir halda til þess að stroka út óæskilegt fólk. Þegar kemur svo að sjálfum kosningum ættum við að nýta okkur mun betur þann rétt sem við höfum til þess að strika út þá sem komast á lista. Verið viss um að allir sem þið kjósið séu traustsins verðir.

Erfiðara er að hreinsa til í viðskiptalífinu en þar sem stjórnvöld eiga nú í reynd alla bankana og þar með í raun öll fyrirtæki í landinu sem skulda bönkunum ætti almennileg ríkisstjórn að geta útilokað misheppnaða útrásarvíkinga þegar kemur að því að koma á eðlilegra ástandi. Reyndar finnst mér að við ættum að ganga lengra og hafa allar klær úti til þess að klófesta aftur þá peninga sem hafa glatast í vasa þeirra. Það er óhjákvæmilegt að við súpum öll seyðið af framferði þeirra en það er ekki nema sanngjarnt að þeir borgi. Nú er til dæmis ljóst að við munum þurfa að greiða eitthvað fyrir Icesave. Best væri að fá peningana til baka í gegnum dómstóla eða afturvirka tekjuskerðingu en ef það gengur ekki þarf að beita öðrum aðferðum. Skattlagning kemur til greina en það þarf að fara hugvitsamlega að henni. Hátekjuskattur gæti gert eitthvað en þeir allra ríkustu hafa litlar launatekjur og honum hættir oft til þess að verða millitekjuskattur. Fjármagnstekjuskatt mætti hækka en tekjurnar liggja núna flestar í fortíðinni enda er hlutabréfamarkaðurinn horfinn. Helst væri mögulegt að ná peningum aftur með einhverskonar eignaskatti sem yrði þá í raun dulbúin eignarupptaka. Það þarf þó að vega og meta skaðann sem þetta gæti valdið okkur. Þetta yrði líklega bara tímabundin aðgerð.