Archive for June, 2009

Icesave

Sunday, June 7th, 2009

Ég held að við neyðumst til þess að komast að samkomulagi við Breta. Það væri freistandi að skella bara í lás. Við höfum gert það áður en þá áttum við banda(ríkja)menn sem þurftu á okkur að halda. Það er líka freistandi að þjóðnýta bara allt heila klabbið fyrst við höfum tækifæri til þess og endurúthluta því svo skynsamlega. En já frændi minn í stjórnarráðinu segir að við séum bara heppin ef við sleppum með Icesave. Sögulega hafa skuldir hinsvegar ekki verið svo mikið mál. Eftir 1918 sátu þjóðverjar uppi með gífurlegar stríðsskaðabætur en afborganirnar voru ekki eins þungbærar og við var búist. Svo hættu þeir bara að borga. Bandaríkjamenn og Bretar voru stórskuldugir eftir seinna stríð en það man enginn eftir því núna. Jafnvel þó að við endum uppi með 100+% af þjóðarframleiðslu í skuldir þá er það sambærilegt við sum önnur lönd sem þurftu ekki einu sinni kerfishrun til að ná því hlutfalli. Ég efast því um að skuldirnar muni verða eins áþreifanlegar og upphæðirnar benda til.Ef bjartsýnin virkar ekki þá getum við verið svartsýn í staðin. Ef olíulindir klárast og gróðurhúsaáhrifin halda áfram mun hagkerfi heimsins hrynja hvort sem er. Þá munu pappírsskuldir ekki skipta máli. Við höfum þó fjandi mikið af endurnýjanlegri orku og ef verstu spár rætast verður Ísland einna byggilegasti hluti heimsins í lok aldarinnar. Við þurfum bara að finna leið til að knýja traktora og togara með fossafli og þá þurfa bændur ekki lengur að liggja andvaka yfir innfluttum matvælum, það verða engin.