Hið dularfulla hvarf Albert Schweitzers og Hárlausu söngkonunnar
Þá er beinni Gettu betur þátttöku minni víst lokið. Það er vissulega sárt að tapa svona naumt og augljóst að þegar liðin eru svona jöfn getur ein spurning til eða frá skipt öllu máli. Hinsvegar hjálpar ekkert að velta sér upp úr þessu og nú vona ég bara að MK takist að sigra MR liðið, en þar er við ramman reip að draga.
Eftir á að hyggja sé ég engar veilur á herkænsku okkar en spurningarnar áttu ekki alveg nógu vel við okkur. Þó að Davíð Þór sé með skemmtilegri dómurum í þessari keppni þá er kynslóðabilið kannski svolítið greinilegt. Margar vísbendingaspurningarnar voru full léttar þannig að mjög oft var barátta um bjölluna í fyrstu vísbendingu á meðan aðrar komu aldrei. Albert Scweitzer og leikritið Hárlausa Söngkonan eru atriði sem hver einasta manneskja yfir fertugu virðist vita á meðan við unglingarnir stöndum á gati. Þetta er reyndar mjög athyglisvert fyrirbæri þar sem Albert Schweitzer var eftir frekari rannsóknir mínar (byggðar á munnlegum heimildum) nefndur við svipuð tilefni og Móðir Theresa og Dalai Lama og í alla staði mjög athyglisverður. Þessi vitneskja virðist þó af einhverjum ástæðum ekki hafa borist áfram til yngri kynslóða. Nú vona ég bara að skrif mín séu ekki mörkuð of miklum biturleika því að við þessar aðstæður skiptir mestu að geta tapað með reisn. Ég vil þakka öllum vinum aðstandendum og skólafélögum stuðninginn og þá sérstaklega þeim dygga hópi sem hefur komið á næstum hverja keppni (þið vitið hver þið eruð).
Á hversdagslegri nótum þá er fyrstu nánu kynnum mínum af áfengi lokið og þar með tel ég mig hafa uppfyllt loforð mitt til Hildar og Snorra.
Tónlist: Radiohead- Amnesiac. Frábær plata en ég mæli ekki með henni fyrir andlega óstöðuga.
March 24th, 2007 at 1:27 pm
þetta var hreint út sagt ótrúlega spennandi keppni, ég veit ekki hvernig þið höndluðuð þessa pressu, annars var þetta flott frammistaða og þið duttuð út með mikilli reisn, þetta bara datt ekki ykkar megin því miður
hvernig fór áfengið annars í þig?
March 25th, 2007 at 4:54 am
Þetta var frábær keppni og bæði lið geta verið mjög sátt við sína frammistöðu - hafandi tapað í úrslitum Morfís veit ég þó að það bæta engin orð fyrir sigurmissi.
Albert Schweitzer spurningin þótti mér gríðarlega áhugaverð því ég hafði hana nánast frá upphafi á meðan ég vissi ákaflega lítið annað í keppninni. Þetta er greinilega háalvarlegt kynslóðabil og ég legg til að stofnaður verði sérstakur félagsskapur um Albert heitinn til að viðhalda minningu hans í framtíðinni.
Gangi ykkur annars allt í haginn í framtíðinni, sagan sýnir að þeir sem standa sig í gettu betur standa sig oftar en ekki vel í þjóðfélaginu/lífinu.
March 26th, 2007 at 7:24 am
Ég hefði sko pottþétt mætt á allar keppnir hefði ég verið á landinu, en ég sendi ykkur hlýja miðjarðarhafsstrauma í staðinn
p.s. hlakka til að heyra villtar fylleríssögur þegar ég kem heim!
March 27th, 2007 at 3:43 pm
Já, þetta var sko villt, sumir alveg gubbandi góðir!
March 27th, 2007 at 5:24 pm
Segir maðurinn sem fór heim fyrir miðnætti.
March 30th, 2007 at 12:53 am
Ég fór í mitt eigið litla einkateiti, svo getur nú margt gerst á leiðinni heim…
April 1st, 2007 at 5:34 pm
Skál fyrir ykkur öllum í Gettu betur liði MH!
Þið stóðuð ykkur rosalega vel
April 3rd, 2007 at 6:33 pm
Það eina sem vantaði var minn stuðningur og eftir því sé ég meira en þú getur ímyndað þér, en svona einfalt er það. En eruð þú og áfengi orðnir vinir?
April 3rd, 2007 at 11:25 pm
Gugga sagði að hayden christiansen gaurinn hefði leikið Luke… lemd’ana!
April 4th, 2007 at 2:34 pm
Hey!? Ég meinti auðvitað að hann hefði leikið Kaptein Kirk.
May 19th, 2007 at 7:50 pm
Ekki einu sinni kosningablogg…