Jólin eru komin í Hólavallagarði

Nú þegar hysterían um lifandi hundinn Lúkas er búinn er loksins óhætt að blogga þó að ég sé líklega nú þegar búinn að stimpla mig sem plebba bara með því að minnast á hann.

Annars er svosem ekki mikið til að blogga um svona á sumrin svo ég þarf varla að afsaka mig. Helst í fréttum er Nýju Jórvíkur-ferðin sem lagt verður upp í eftir tvær vikur. Þökk sé töfrum google þá er hægt að skipuleggja ferðina niður smæstu smáatriði. Hérna er tildæmis farfuglaheimilið sem ég mun gista á.

Skuggalegra er hinsvegar það að fyrsta morðið í tvö ár á landinu, og það fyrsta skipulagða sem ég man eftir, hafi verið framið hérna í næsta nágrenni. Skrítið að hverfissundlaugin og gatnamótin sem ég hjóla framhjá annan hvern dag séu vettvangur morðs af yfirlögðu ráði. Það er svo sem ekki mikið um það að segja nema hve mikill harmleikur það hlýtur að vera fyrir alla hlutaðeigandi.

Nálægðin við dauðan í mínu daglega umhverfi varð líka áþreifanlegri þegar við fundum bein við stígagerð í kirkjugarðinum. Þrátt fyrir það að ég vinni í kirkjugarði hafði ég aldrei sé látna persónu áður. Eitthvað þótti mér það þó grunsamlegt hve smágerð beinin voru og hve grunnt þau voru grafin. Þegar við fundum svo beittar tennur í kjálkabeininu og leifar af ól þá sannfærðist ég um að þarna lægi köttur en ekki barn. Núna liggur hann í vígðri jörð undir stíg í svæði X.

Við stígagerðina fékk ég svo Jólalag á heilann. Lagið var sem betur fer hið fallega “Það á að gefa börnum brauð”. Hinsvegar reyndist mér það um megn að raula það því að ég var svo óheppinn að fá það á heilann raddað og í keðjusöng.

3 Responses to “Jólin eru komin í Hólavallagarði”

  1. Baldur Says:

    Nú hafa nokkrar sálir snúið sér við í kistunni, Guttormur byrjaður að blogga á ný :o
    Það er nú reyndar fínt að þú nýtir þessa jólagjöf, sérstaklega núna eftir að hún er komin á stabíla hýsingu í Bandaríkjunum og dettur ekki út þegar netið fer í klessu hjá mér.
    Ég mæli núna eindregið með því að þú farir að experímenta með ný útlit á síðuna, þú sért nú hvað mín er orðin flott og getur varla látið þína eftir liggja :D

  2. Baldur Says:

    Þetta var nú slöpp endurkoma…

  3. Baldur Says:

    Koma svo Gutti, þú hefur frá mörgu að segja!

Leave a Reply