Sagnfræði, jól og gettu betur
Titillin lýsir ágætlega því sem hefur á daga mína drifið undanfarið misseri en þó mætti bæta við Nýju Jórvíkur-ferðinni sem heppnaðist mjög vel. Við urðum a.m.k. ekki viðfangsefni C.S.I. eða 24. Verst að eina fræga fólkið sem við sáum voru Chris Tucker og gaurinn úr “King of Queens” (í Queens á hafnarboltaleik).
Einkunnirnar úr sagnfræðinni streyma inn og meðaleinkunnin er komin upp í 8,25. Vonandi hækkar heimssagan hana meira. Framhaldsskólataktíkin dugir hinsvegar ekki mjög vel í háskólanámi. Svo verður spennandi að mæta í tíma hjá Vali Ingimundarsyni og Þór Whitehead.
Gettu betur lið MH stóð sig vel og er komið í aðra umferð keppninnar og auðvitað fer það eitthvað lengra í framhaldinu. Fyrsta umferðin hefur þó verið frekar skringileg. Spurningarnar misþungar og frekar einhæfar (þó ég hefði ekkert á móti þeim væri ég í liðinu). Greinilegt er þó að MR og MK eru sterkustu andstæðingarnir og MA og Verzló koma líka sterkir inn þó það komi svo sem ekkert á óvart. Verst að MH mun ekki bæta kynjahlutfallið í keppninni að þessu sinni. Á næsta ári verður greinilega að taka upp Stalínískar aðferðir við val á keppendum til að finna alla mögulega keppendur af öllum mögulegum kynjum. Allir verða neyddir í próf og þeir efstu þvingaðir í stranga þjálfun í Sovéskum samyrkjubúum.
January 10th, 2008 at 5:26 pm
Já það er leiðinlegt með kvennmannsleysið, MH hefur oftast staðið sig áætlega í því að bæta kynjahlutfallið í keppninni og oft átt magnaða kvenkynskeppendur samanber Hildur og Inga??? eða hvað hún nú hét aftur.
January 11th, 2008 at 5:11 pm
Já heyrðu, ekkert nema nýliðar og Snorri núna í Gettu Betur liðinu…eða hvað? Ætli maður reyni ekki að glápa á þetta þegar þau fara í sjónvarpið…. Ertu búinn að vera e-ð að þjálfa?
Líst bara vel á samyrkjubúshugmyndina. Hvað er geðheilsa þegar sigur í Gettu Betur er í húfi
January 11th, 2008 at 6:00 pm
Inga Þóra.
En það verður pottþétt stelpa á næsta ári.
Jú, jú við Hildur höfum verið á kafi í þessu en nú hefst mesta törnin. Ef við komumst í sjónvarpið þar að segja.
September 17th, 2009 at 4:58 am
Good post,This was exactly what I needed to read today! I am sure this has relevance to many of us out there.