Róttækir vörubílstjórar

Ég fór í fýluferð niður í Grófarhús til þess að taka árbók Reykjavíkur fyrir ritgerðina mína. Mig vantaði tölfræði til þess að styðja kenningu mína um að skipulagsmál í Reykjavík eftir seinni heimsstyrjöld væru klúður. Ég gekk fram á vörubílstjóra sem voru önnum kafnir við að drekka kaffi, spjalla við lögguna og innikróa nokkra ráðherra í Hafnarhúsinu hliðina á bókasafninu. Mótmæli þeirra hafa ekki snert mig mikið en þeim tókst þó að halda fyrir mér vöku með flauti sínu þegar ég ætlaði að leggja mig á föstudaginn fyrir einni og hálfri viku.

Fólk kvartaði mikið yfir óskammfeilninni í lötu útlendingunum og föðurlandssvikurunum sem hlekkjuðu sig við allt lauslegt og lokuðu Snorrabrautinni síðasta sumar í nafni náttúruverndar. það var allt of langt gengið. Nú þegar vörubílstjórar loka heilu hverfunum, tefja sjúkraflutninga og halda vöku fyrir landsmönnum marga daga í senn er hinsvegar allt í lagi. Fólk styður þá heilshugar þó það komist ekki til útlanda eða í vinnuna fyrir þeim. Kannski vegna þess að bílafólkið sem verst verður úti hefur svo mikla samúð með kröfum þeirra um lægra bensínverð. Sjálfur hef ég meiri samúð með hvíldarplanaleysi þeirra og þessu “catch 22″ samspili íslenskra vegalengda og Evrópusambandsreglna. Þeim gengi kannski betur ef þeir parkeruðu trukkunum sínum í Brussel og fyrir framan bensínstöðvar. Ég vona að minnsta kosti að ríkisstjórnin láti ekki undan og lækki álögur á bensín.

Það virðist þó engin hætta á því. Geir varð svo reiður yfir því að þurfa að labba frá Hafnarhúsinu og upp í stjórnarráð (strætóinn sem ég tók stoppar þar líka en við vorum samt ekki samferða) að hann ætlar ekki að semja. Athyglisvert að þetta er það fyrsta sem ég heyri í ríkisstjórninni um þetta mál. Loksins þegar vörubílstjórar taka upp hnitmiðaðar aðgerðir gegn ríkisstjórninni í stað þess að tefja lækna og Grafarvogsbúa þá fyrst er þetta orðið ólíðandi dónaskapur. Svona eru viðhorf Íslendinga til mótmæla þversagnarkennd.

5 Responses to “Róttækir vörubílstjórar”

  1. Kamma Thordarson Says:

    Það er alltaf skemmtilegt að lesa hvað þú hefur að segja um ýmis málefni!

  2. Gutti Says:

    Gott að vita að einhver les þetta. :)

  3. Baldur Says:

    Ég les líka, svona til að veita þér frekari hughreistingu. Hinsvegar var ég þreyttur og steiktur í hausnum þegar ég las þetta um daginn og vissi ekki hvaða athugasemd ég hefði átt að koma með… skemmtilegt hvernig hún endar á því að vera í raun um sjálfa sig.
    Annars er það eiga sem ég rek augun í að ég þarf greinilega að lesa bókina Catch 22, ég er sífellt að sjá tilvitnanir í hana hér og hvar. Þá kannski átta ég mig betur á því hvað fólk er að segja og dettur þá í kjölfarið í hug eitthvað hárbeitt á móti.

  4. Baldur Says:

    Það eina sem ég rek augun í, endilega lagaðu þetta fyrir mig þarna uppi og eyddu þessu… eða leyfðu þessu að standa svo aðrir geti hlegið að mér.

  5. Gutti Says:

    Ef ég nenni.
    Catch 22 las ég alla á einum sólahring í ensku og þar sem hún er nokkuð löng og að mér sýndist að mestu án söguþráðs þá hafði ég takmarkað gaman af henni.

Leave a Reply