Icesave
Ég held að við neyðumst til þess að komast að samkomulagi við Breta. Það væri freistandi að skella bara í lás. Við höfum gert það áður en þá áttum við banda(ríkja)menn sem þurftu á okkur að halda. Það er líka freistandi að þjóðnýta bara allt heila klabbið fyrst við höfum tækifæri til þess og endurúthluta því svo skynsamlega. En já frændi minn í stjórnarráðinu segir að við séum bara heppin ef við sleppum með Icesave. Sögulega hafa skuldir hinsvegar ekki verið svo mikið mál. Eftir 1918 sátu þjóðverjar uppi með gífurlegar stríðsskaðabætur en afborganirnar voru ekki eins þungbærar og við var búist. Svo hættu þeir bara að borga. Bandaríkjamenn og Bretar voru stórskuldugir eftir seinna stríð en það man enginn eftir því núna. Jafnvel þó að við endum uppi með 100+% af þjóðarframleiðslu í skuldir þá er það sambærilegt við sum önnur lönd sem þurftu ekki einu sinni kerfishrun til að ná því hlutfalli. Ég efast því um að skuldirnar muni verða eins áþreifanlegar og upphæðirnar benda til.Ef bjartsýnin virkar ekki þá getum við verið svartsýn í staðin. Ef olíulindir klárast og gróðurhúsaáhrifin halda áfram mun hagkerfi heimsins hrynja hvort sem er. Þá munu pappírsskuldir ekki skipta máli. Við höfum þó fjandi mikið af endurnýjanlegri orku og ef verstu spár rætast verður Ísland einna byggilegasti hluti heimsins í lok aldarinnar. Við þurfum bara að finna leið til að knýja traktora og togara með fossafli og þá þurfa bændur ekki lengur að liggja andvaka yfir innfluttum matvælum, það verða engin.
June 10th, 2009 at 3:08 pm
Athyglisverðar pælingar. Þó enginn muni eftir stríðsskuldum Bandaríkjamanna eru nokkrir sem sjá fyrir svartari tíma fyrir þá þegar Kínverjar byrja að rukka trilljónirnar sínar til baka - hvernig heldurðu að það fari?
Ísland er annars klárlega best í heimi, við þurfum bara að flytja matvælaframleiðslu inn í borgarkjarnana (http://en.wikipedia.org/wiki/Vertical_farming) og framleiða biodiesel á ökrunum í staðinn. Sjálfvirk kolefnisjafnaður dieselbíll = ekkert samviskubit og olíuverð sem stjórnast af neysluverðsvísitölu en ekki öfugt \o/
Svo ég haldi nú aðeins áfram að blaðra þurfa þjóðir heimsins að fara að flytja alla framleiðslu aftur heim og keyra innflutning niður í núll. Það er eina örugga leiðin til að halda fast í efnahagsstjórnartaumana og tryggja öryggi á stríðstímum (svona þegar og ef allt fer í háaloft). Þá ætti það líka að geta dregið úr mengun því versta mengunin er á stöðum sem iðnríkin aldrei sjá, eins og í járnnámum og við raftækjaverksmiðjur í Asíu, og enginn vil flytja mengunina heim þó framleiðslan færist þangað.
June 10th, 2009 at 11:08 pm
Kínverjar vilja líklega ekki rukka in peningana sína því að þá verður dollarinn verðlaus og þar með allar trilljón dollara gjaldeyrisbyrgðirnar þeirra. Það verður því allavega ekki með vilja Kínverja sem Bandaríkjamenn hengja sjálfa sig í skuldaólinni, allavega ekki við núverandi aðstæður. Skuldir Bandarískra stjórnvalda voru hlutfallslega miklu hærri eftir stríð en þá voru þær aðallega við Bandaríska þegna ekki erlenda seðlabanka og eftir stríð fóru þær strax að minnka sem hlutfall af þjóðarframleiðslu. Svo erum við heldur ekki stórveldi eins og Þýskaland, Bretland og Bandaríkin svo þetta eru kannski ekki fullkomlega sambærileg dæmi. Skuldir af þessari stærðargráðu eru hinsvegar ekki óþekktar eins og ég sagði.
Svo er það líka pæling hvort að olískort framtíðarinnar í landbúnaði megi ekki leysa með því að senda bara allt atvinnulausa fólkið á akrana í staðin fyrir traktora.