Vinstristjórnin

Enn sér ekki fyrir endann á Icesave deilunni. Þó að stjórnarandstaðan sé höfð með í ráðum lítur ekki út fyrir að hún og Bretar nái saman fljótlega. Ómögulegt gæti samt reynst að ljúka málinu án samþykkis hennar og helst allrar þjóðarinnar eftir útspil forsetans og kosningarnar með eina valkostinum. Það gæti reynst erfitt enda virðist þjóðin bara harðna í andstöðunni eftir því sem málið dregst á langinn. Það er ekki einu sinni víst að stjórnin sjálf geti lokið þessu með vinstri arm VG á móti samningum (og AGS) af hugsjónaástæðum. Einhver sagði að þetta væri hefðbundið herbragð Íslendinga, að setja fram ýtrustu kröfur og bíða svo bara þangað til að andstæðingurinn gæfist upp. Verst að tækifæriskostnaðurinn er gífurlegur.

Kostnaðurinn er ekki bara tilkominn vegna lægra gengis, lánshæfismats, skorts á lánum og öðrum efnahagslegum þáttum. Það sem er mikilvægara í mínum huga er seinkunnin á hreingerningunni sem þarf að fara fram, því sem ég kaus þessa ríkisstjórn til þess að framkvæma.  Ef að öðru útspili stjórnarinnar (þess hluta sem stendur í samningum) verður hafnað af Bretum, stjórnarandstöðunni, forsetanum eða þjóðinni þá hlýtur hún að gefast upp. Hún getur ekki setið aðgerðarlaus með óljúkanlegt mál. Þá tekur annaðhvort við stjórnarkreppa eða, það sem er enn verra, stjórn þjóðernissinnuðu hrunflokkana, hugsanlega með stuðningi vinstri arms VG sem er uppsigað við alþjóðakapítalismann.

Nú hef ég samúð með sjónarmiði þeirra enda lítt hrifinn af honum en af tvennu illu þá eru innlendu pilsfaldakapítalistarnir margfalt verri. Þessi ríkisstjórn er sú eina sem getur leiðrétt það óréttlæti sem ríkt hefur hér. Ef fólk er ósátt við vinnubrögð skilanefndanna þá sýnir það bara að áhrif hrunamanna eru nógu sterk meðan þeir eru utan ríkisstjórnar. Lausin er ekki að hleypa þeim til valda. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn eru of menguð af hagsmunum viðskipatelítunnar til að skapa sanngjarna umgjörð um viðskiptalífið. Það er í eðli þessara flokka að gefa vinum sínum fyrirtæki bankanna, standa vörð um óréttlæti kvótakerfisins, sölsa undir sig almannaeigur, fresta umbótum í átt til lýðræðis og gegnsæis. Ef þessari ríkisstjórn tekst ekki breyta gamla Íslandi þá mun engri ríkisstjórn takast það.

Hinn valkosturinn er ekki sjálfstætt og skuldlaust Ísland það er Árni Johnsen, helmingaskipti, frændur í Hæstarétti, kolkrabbinn, einkavinavæðing, smokkfiskurinn, kvótakerfið, verktakskipulag, Hannes Hólmsteinn, Íraksstríðið, eftirlitsleysi, smjörklípur, óendurskoðuð stjórnarskrá og Davíð Oddsson.

One Response to “Vinstristjórnin”

  1. Katla Says:

    Mikið er ég hjartanlega sammála þér. Gott blogg :)

Leave a Reply