Hið dularfulla hvarf Albert Schweitzers og Hárlausu söngkonunnar

March 24th, 2007

Þá er beinni Gettu betur þátttöku minni víst lokið. Það er vissulega sárt að tapa svona naumt og augljóst að þegar liðin eru svona jöfn getur ein spurning til eða frá skipt öllu máli. Hinsvegar hjálpar ekkert að velta sér upp úr þessu og nú vona ég bara að MK takist að sigra MR liðið, en þar er við ramman reip að draga.

Eftir á að hyggja sé ég engar veilur á herkænsku okkar en spurningarnar áttu ekki alveg nógu vel við okkur. Þó að Davíð Þór sé með skemmtilegri dómurum í þessari keppni þá er kynslóðabilið kannski svolítið greinilegt. Margar vísbendingaspurningarnar voru full léttar þannig að mjög oft var barátta um bjölluna í fyrstu vísbendingu á meðan aðrar komu aldrei. Albert Scweitzer og leikritið Hárlausa Söngkonan eru atriði sem hver einasta manneskja yfir fertugu virðist vita á meðan við unglingarnir stöndum á gati. Þetta er reyndar mjög athyglisvert fyrirbæri þar sem Albert Schweitzer var eftir frekari rannsóknir mínar (byggðar á munnlegum heimildum) nefndur við svipuð tilefni og Móðir Theresa og Dalai Lama og í alla staði mjög athyglisverður. Þessi vitneskja virðist þó af einhverjum ástæðum ekki hafa borist áfram til yngri kynslóða. Nú vona ég bara að skrif mín séu ekki mörkuð of miklum biturleika því að við þessar aðstæður skiptir mestu að geta tapað með reisn. Ég vil þakka öllum vinum aðstandendum og skólafélögum stuðninginn og þá sérstaklega þeim dygga hópi sem hefur komið á næstum hverja keppni (þið vitið hver þið eruð).
Á hversdagslegri nótum þá er fyrstu nánu kynnum mínum af áfengi lokið og þar með tel ég mig hafa uppfyllt loforð mitt til Hildar og Snorra.

Tónlist: Radiohead- Amnesiac. Frábær plata en ég mæli ekki með henni fyrir andlega óstöðuga.

Stórviðburðir

March 7th, 2007

Verzlingar stóðu sig vel síðasta föstudag. Það er hinsvegar leiðinlegt að hitt liðið skipað stelpum hafi dottið út, en það stóð sig einnig mjög vel miðað við að það er bara skipað nýliðum. Spurningarnar hans Davíð eru líka skemmtilegar (óskaplega er þessi færsla að verða pirrandi jákvæð) og þessi keppni var næstum því eins og sniðin fyrir okkur, án þess að ég gefi meira upp. Hinsvegar er greinilegt að við þurfum að passa okkur því sumar spurninganna eru augljósari en maður þyrði að halda á meðan aðrar eru langsóttari og því væri auðvelt að brenna sig á bjöllunni. Annað áhyggjuefni tengt þessu eru skemmtiatriðin. Ég hef ekkert heyrt frá Sjónvarpinu um tilhögun þeirra en samt eru stjórnin og liðið farið að velta þessu fyrir sér. Ætli það væri ekki MH-legast að senda einhverja hljómsveit en það gæti orðið erfitt að velja úr flórunni. Svo er náttúrulega viðbúið að flestir MH-ingar verði á Morfís. Ef allt bregst sendum við bara trúbadorinn Snorra Snobb (núna vantar bara viðurnefni fyrir Hildi) upp á svið.

19 ára afmælið er um helgina en ólíkt síðustu þremur (jafnvel fleirum ef maður telur með sakhæfi) afmælum er ekkert merkilegt við þau tímamót frá lagalegu sjónarmiði, ég skora á ykkur að finna eitthvað. Það þýðir ekki að afmælið verði leiðinlegt. Þóra systir er búin að bjóða mér á Leg á föstudaginn og svo verður eitthvað boð á laugardaginn. Miðað við tímamótin framundan er líka best að halda þessu í smærri kantinum. Steinar fermist 1. apríl og fékk kjólföt í tilefni þess. Það er greinilegt að fatasmekkurinn þroskast við þessi tímamót. Í maí verður svo hið stórskemmtilega tvöfalda fimmtugsafmæli/útskrift sem allir bíða spenntir eftir.

München, Gettu betur og Björn Bjarnason

February 27th, 2007

Aðalverkefni söguáfangans sem ég er í er ritgerð sem á að styðjast við samtímaheimildir. Þema áfangans er millistríðsárin og efnið mitt er München sáttmálinn alræmdi þar sem Bretar og Frakkar gáfu Þjóðverjum leyfi til þess að hirða megnið af Tékkóslóvakíu. Þessu tókst mér að tvinna saman við annað helsta áhugaefni mitt, pólitík. Ég ætla að skoða umfjöllun um þennan sáttmála í nútímanum í samabandi við stríðsrekstur Bandaríkjanna undanfarið. Það hefur nefnilega verið vitnað í friðkaupsstefnu bandamanna ótal sinnum í tenglsum við friðarhreyfinguna og stríðið í Írak og nú síðast aðgerðir gegn Íran. Auðvitað skiptir engu máli að Þýskalandi hafði stærsta flugher og best þjálfaða her í heimi og var stjórnað af Hitler á meðan Írak og Íran eru þriðjaheimslönd og að Bandaríkin eru árásaraðillinn. Vissulega væri það slæmt ef að vitleysingjarnir í Íran eignuðust kjarnorkusprengju en á móti kemur að þeir hafa lýst því yfir að það sé ekki markmið þeirra (kannski þeir séu að ljúga en til þess eru eftilitsmenn) á meðan Bandaríkin eiga þúsundir kjarnorkusprengja, eru eina landið sem hefur notað þær og hyggst janfvel nota þær til þess að koma í veg fyrir að Íranar geti hugsanlega fengið sér eina. Hvort landið er meiri ógn við heimsfriðinn?

Nú er orðið skuggalega stutt í Gettu betur og fyrsta keppnin búin í sjónvarpinu. MK komu mér á óvart og eiga það greinilega skilið að komast í undanúrslit. Nú er bara að vona að við fylgjum fordæmi þeirra. Af ofsóknaræðislegum örryggisástæðum opinbera ég ekki leslista minn en nú þarf að gefa í ef ég ætla að klára hann.
Björn Bjarnason kom umhverfisstefnu sjálfstæðisflokksins til varnar í grein í Mogganum í dag. Það er kannski til vitnis um hugsunarhátt hans að hann eyddi u.þ.b. setningu í það að telja upp það góða sem sjálfstæðisflokkurinn hefur gert í þágu umhverfisverndar en helmingi greinarinnar í að skamma Sovétríkin fyrir vonda umgengni um náttúruna. Persónulega á ég erfitt með að sjá hvað umhverfis- og iðnaðarstefna ríkis sem hefur ekki verið til í tvo áratugi hefur að gera með núverandi stefnu hægrisinnaðs stjórnmálaflokks á Íslandi. Björn vill meina að Vinstri-grænir séu tengingin en það á ég erfitt með að skilja. Líklegra finnst mér að háttvirtur dóms- og kirkjumálaráðherra sé svo fastur í kalda stríðs-hugsunarhætti að hann geti ekki rætt umhverfismál málefnalega. Það er ákveðin kaldhæðni fólgin í því enda hefur hann verið manna uppteknastur við að saka vinstri menn um að vera fasta í fortíðinni.

Kosningar í nánd

February 2nd, 2007

Stefán Pálsson kom í tíma í alþjóðastjórnmálum og mælti fyrir friði á vegum Samtaka hernaðarandstæðinga. Hann færði mjög góð rök fyrir friðsamlegri utanríkisstefnu og gegn hernaðarhyggju. Sérstaklega skemmtilegt var það þegar hann kvartaði yfir því að friðarsinnar væru alltaf álitnir óraunsæir draumóramenn á meðan vopnaseljandi stríðsrekendur væru taldir skynsamir og rökfastir. Sérstaklega þá Bandaríkjamenn sem hafa lagst í ótal vanhugsuð stríð og byrgt hvert landið á fætur öðru af vopnum sem seinna er beitt gegn þeim sjálfum. Eina raunhæfa leiðin til þess að Íslendingar geti fylgt sjálfstæðri utanríkisstefnu sem aflaði okkur virðingar utanlands er að losa okkur við alla hernaðarhyggju. Landhelgisgæslan, lögreglan og friðargæslan ættu öll að vera borgaraleg. Fátt held ég að sé verra fyrir Ísland en að þjálfa óharnaða unglinga í því að drepa og byggja svo þjóðarstolt sitt á þeim.
Þrátt fyrir gífurlegt fylgistap Framsóknar sem ætti að vera góðar fréttir fyrir alla stjórnarandstæðinga er ekki útséð um að við losnum við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn úr ríkisstjórn. Samfylkingin sem ætti að vera jafnaðarmannaflokkur með fjöldafylgi hríðfellur í skoðannakönnunum vegna þess að hann er ekki nógu trúverðugur. Hvort það er vegna hringlandaháttar og málefnafátæktar eða áróðri hatursmanna samfylkingarinnar um hringlandahátt og málefnafátæktar hennar veit ég ekki. Frjálslyndir eru við það að klofna og eftir gæti staðið uppi flokkur alls óhæfur til stjórnarsamstarfs vegna útlendingahaturs og plebbaskaps. Einungis Vinstri grænir halda andlitinu en á móti koma milljón sérframboð sem virðast hafa þann eina tilgang að skipta fylgi stjórnarandstæðinga í enn smærri parta til hagsbóta fyrir stærsta flokkinn, Sjálfstæðisflokkinn. Framtíðarlandið berst fyrir umhverfismálum alveg eins og Vinstri grænir. Aldraðra og öryrkjaframboðin berjast fyrir bættum hag skjólstæðinga sinna alveg eins og Vinstri grænir og Samfylkingin og fyrst að Jón Baldvin Hannibalsson vill aftur út í pólitík afhverju bauð hann sig þá ekki fram í prófkjöri Samfylkingarinnar?

Yfirlýst markmið þessara sérframboða er að taka fylgi frá Sjálfstæðisflokknum en ég held að Frjálslyndi flokkurinn hafi meiri möguleika á því en þau. Eru þetta allt gamlir sjálfstæðismenn sem geta ekki hugsað sér að taka saman við skoðanabræður sína á vinstri vængnum vegna fordóma eða er fólk bara óhóflega bjartsýnt? Er svona slæmt að vera þverpólitískur þrýstihópur, þurfa allir talsmenn hagsmunahópa að bjóða sig fram? Hvað næst? Neytendasamtökin, Samtök hernaðarandstæðinga, BDSM-félagið? Eina sérframboðið sem virkilega á rétt á sér er hinn nýji útlendingahræðsluflokkur sem Frjálslyndir eru að verða enda hefur svoleiðis hugmyndafræði sem betur fer ekki átt upp á pallborðið hjá stjórnmálaflokkum vöndum að virðingu sinni.

Gettu betur II

January 18th, 2007

Síðan síðast höfum við unnið báða mótherjana í útvarpinu og eru því komin aftur í sjónvarpið. Það er gott fyrir athyglissjúka MH-inga eins og okkur og við getum lofað skemmtilegum búningum. Þrátt fyrir hættuna á því að hljóma hrokafullur þá er ég nokkuð sáttur með dráttinn í sjónvarpið. MK vinnur líklega FG (sem var nú reyndar drauma andstæðingur Garðbæingsins í liðinu) og MR sömuleiðis MS. MA-Verzló verður því líklega mest spennandi keppnin en þó að Verzló hafi ekki staðið sig neitt sérstaklega vel þá eru þeir frekar mistækir og ég býst við góðum árangri í sjónvarpinu. Frá feminísku sjónarmiði væri þó best að MA kæmist sem lengst (eða við).

Annars hef ég haft það nokkuð gott síðan við unnum þrátt fyrir kvefpestina sem ég hef verið að jafna mig á. Máni er kominn til landsins að nýju sem er gott því að ég hafði ekkert tækifæri til þess að hitta hann fyrir jól. Næsti mánuður verður svo helgaður glósum.

Gettu Betur

January 11th, 2007

Ætli maður reyni ekki að viðhalda þessari síðu eitthvað betur en bloggernum úr því að þetta er nú einu sinni gjöf.

Enn og aftur er komið að Gettu betur og fyrsta viðureignin er við Hvanneyri núna á morgun. Núna ætla ég mér ekki að verða virtur Gettu betur bloggari eins og Snorri félagi minn en ætli ég leyfi mér ekki að spá aðeins í þetta.

Það borgar sig aldrei að vanmeta andstæðinginn og miðað við stærð hefur Hvanneyri bara staðið sig nokkuð vel, allavega betur en Iðnskólinn í Hafnarfirði. Hinsvegar erum við með gott lið og við höfum öll reynslu af fyrri keppnum svo að ég býst við því að við komumst í aðra umferð. Hún veldur mér hinsvegar nokkrum áhyggjum (ef að við leyfum okkur að hugsa sem svo að við komumst áfram) þar sem að ekkert stendur í vegi fyrir því að við lendum á mótu MR og Versló, liðum sem ég er ekki viss um að við gætum sigrað með svo stuttum fyrirvara. Ef ég tek mér það bessaleyfi að hugsa enn lengra fram í tíman þá er sjónvarpið náttúrulega alltaf markmið fyrir athyglissjúk Gettu betur lið eins og okkur. Sigurinn er svo náttúrulega lokatakmarkið enda ekki seinna vænna að virðuleg menntastofnun eins og MH hampi hljóðnemanum.

Ný heimasíða

December 25th, 2006

Jæja þá er ég búinn að finna nýju heimasíðuna mína.
Ég vil nota tækifærið til þess að þakka Mána og Baldri. Núna verð ég greinilega að vera duglegri að blogga og setja inn myndir.

Gleðileg jól.

Blogg fyrir þig

December 22nd, 2006

Velkominn og gleðileg jól!

Til hamingju með að hafa fattað að líta neðst í kassann. Ég vona að þú hafir litið út eins og asni í a.m.k. nokkrar mínútur áður en þú fattaðir að henda öllu úr honum ;) Annars er þetta þitt! Þín eigin bloggsíða, sem getur gert það sem ÞÚ vilt að hún geri. Ekkert meira blogger vesen sem leyfir þér ekki að senda inn endalausar ádeilugreinar um Bandaríkin, nú eru þér allir vegir færir og möguleikarnir takmarkast aðeins af ímyndunaraflinu! [/klisja]

Til að skrá þig inn smellirðu á login hérna til hliðar og skráir þig inn sem ‘admin’ með sama lykilorð og er að tölvunni þinni niðri (að því gefnu að þú hafir ekki breytt því eftir að ég lærði það). Það fyrsta sem ég mæli með að þú gerir er að breyta lykilorðinu (nema þú viljir veita mér aðgang að síðunni líka ;)), því næst að henda þessari færslu og að lokum að setja gamla bloggið þitt inn. Til að allt sé á hreinu er þetta framkvæmt svona:

  • Lykilorðinu breytirðu undir Users í valmyndinni
  • Til að eyða færlsunni ferðu í Manage og ýtir á Delete við færsluna
  • Þú ferð í Import, velur Blogger og slærð inn notendanafnið þitt og lykilorð að því kerfi til að færa inn allar gömlu færslurnar þínar

Að lokum væri ekki óvitlaust að senda inn hlekk á gamla bloggið til að láta alla vita af nýja staðnum.

Ég vona að þetta muni reynast vel og að kostirnir sem Wordpress kerfið hefur framyfir Blogger vegi þyngra en óþægindin sem hugsanlega kunna að skapast af því að ég geymi síðuna á servernum mínum. Í versta falli læturðu slóðirnar benda á gamla bloggið þitt og ég hendi þessu hérna.

Nú ertu orðinn maður með mönnum, átt nafniðþitt.com, og .net, OG .org svo þú ferð ekki lengur framhjá neinum sem á annað borð rekst á þig.

Gangi þér vel að blogga,
Baldur og Máni